Notendaskilmálar — Rafræni Riddarinn
Síðast uppfært: 2. september 2026
1. Þjónustan
SMART Ráðgjöf ehf., kt. 501006-0410 („við“), veitir aðgang að Rafræna Riddaranum á https://rr.smr.is: yfirferð, greining, samþykkt og áframsending reikninga í bókhaldskerfi viðskiptavinar.
2. Hlutverk
Viðskiptavinurinn (félagið) er ábyrgðaraðili reikninga, birgja og tengdra gagna. Við erum vinnsluaðili þeirra gagna. Vinnslusamningur (28. gr.) er fylgiskjal við þennan samning og gildir með honum.
Við erum ábyrgðaraðili aðgangs notenda að kerfinu. Persónuverndarstefna okkar gildir um þann hluta.
3. Gervigreind
Reikningsskjöl eru greind sjálfvirkt með Claude frá Anthropic PBC. Sú vinnsla fer fram í Bandaríkjunum. Nánar í persónuverndarstefnu og vinnslusamningi. Viðskiptavinur samþykkir þessa vinnslu með því að nota greininguna.
4. Aðgangur og notendur
Viðskiptavinur stofnar notendur og ákveður hlutverk. Hann ber ábyrgð á að þeir sem fá aðgang megi sjá gögn félagsins, og á að kennitala samþykkjanda sé rétt.
5. Bókhaldstengingar
DK- og Unimaze-lyklar eru viðskiptavinarins. Við notum þá aðeins til að veita þjónustuna.
6. Ábyrgð
Kerfið greinir reikninga til tillögu. Viðskiptavinur ber ábyrgð á yfirferð, samþykkt og því sem sent er í bókhald. Við ábyrgjumst ekki að sjálfvirk greining sé villulaus.
7. Uppsögn og gögn
Við lok þjónustu skilum við eða eyðum gögnum félagsins innan 60 daga, nema lög krefjist varðveislu, sbr. vinnslusamning.
8. Breytingar
Breytingar á skilmálum eða persónuverndarstefnu eru birtar á vefnum með dagsetningu.